Shipping policy
Þessir skilmálar gilda um öll kaup í netverslun Fjarðabása á fjardabasar.is. Með því að ganga frá pöntun samþykkir þú skilmálana. Um kaupin gilda einnig lög um neytendakaup nr. 48/2003 og lög um neytendasamninga nr. 16/2016.
Seljandi
Fjarðabásar
Kennitala: 210483-5009
Molinn, Hafnargötu 2, 730 Reyðarfirði
Netfang: fjardabasar@gmail.com
Sími: 780-7700
Vörurnar
- Fjarðabásar er hringrásarverslun. Flestar vörur eru notaðar og seldar í umboðssölu fyrir einstaklinga sem leigja bás hjá okkur. Fjarðabásar sjá um söluna, greiðsluna og afhendinguna.
- Við leggjum okkur fram um að lýsa hverri vöru rétt og sýna hana vel á myndum. Litir geta þó virst aðeins öðruvísi eftir skjám. Eðlileg notkunarmerki sem koma fram í lýsingu eða á myndum teljast ekki galli.
- Flestar vörur eru aðeins til í einu eintaki og eru einnig til sölu í versluninni okkar. Ef vara reynist seld eftir að þú pantar hana látum við þig vita strax og endurgreiðum hana að fullu.
Verð
- Öll verð eru í íslenskum krónum og eru endanleg verð vörunnar. Sendingarkostnaður bætist við og kemur fram áður en greitt er.
- Við áskiljum okkur rétt til að hætta við pöntun ef verð er rangt vegna augljósrar villu. Ef það gerist látum við þig vita og endurgreiðum að fullu.
- Afsláttur á vörum kemur fram á vörusíðu og dregst sjálfkrafa frá í körfu.
Pöntun og greiðsla
- Kaupsamningur kemst á þegar greiðsla hefur verið staðfest og þú hefur fengið staðfestingu á pöntun í tölvupósti.
- Greitt er með þeim greiðsluleiðum sem í boði eru í greiðsluferlinu. Greiðslur fara í gegnum örugga greiðslumiðlun og við sjáum aldrei kortaupplýsingar.
Afhending
- Pantanir eru sendar með Póstinum. Sendingarkostnaður og afhendingarmöguleikar koma fram í greiðsluferlinu.
- Frí sending er á pöntunum yfir 9.000 kr.
- Við reynum að senda pantanir af stað eins fljótt og hægt er, yfirleitt innan 1–3 virkra daga. Afhendingartími Póstsins bætist þar við.
- Þegar verslunin er lokuð, t.d. í vetrar- eða sumarfríi, getur sendingartími lengst. Lokanir eru auglýstar hér á síðunni með fyrirvara og pantanir sem berast á meðan eru sendar af stað um leið og við opnum aftur.
- Ábyrgð á vörunni flyst til kaupanda þegar hún hefur verið afhent.
- Nánar í sendingarstefnu.
Skilaréttur
- Þú hefur 14 daga frá móttöku til að hætta við kaup í netversluninni.
- Kaupandi greiðir sendingarkostnað við að skila vöru.
- Ekki er hægt að skila vörum sem keyptar eru í versluninni sjálfri.
- Allar upplýsingar um skil og endurgreiðslur eru í skila- og endurgreiðslustefnu.
Gallar
Ef vara er gölluð eða ekki í samræmi við lýsingu skaltu hafa samband við okkur sem fyrst. Þú átt rétt á að kvarta yfir göllum samkvæmt lögum um neytendakaup.
Gjafabréf
- Gjafabréf gilda í 1 ár frá kaupdegi. Gildistíminn kemur einnig fram á gjafabréfinu sjálfu.
- Gjafabréf gilda eingöngu hjá Fjarðabásum, bæði í netversluninni á fjardabasar.is og í verslun Fjarðabása í Molanum, líka á vörur á afslætti. Þau gilda ekki í öðrum verslunum í Molanum.
- Ef aðeins hluti gjafabréfs er notaður haldast eftirstöðvarnar inni á því út gildistímann.
- Ekki er hægt að skipta gjafabréfum í peninga.
- Gjafabréf jafngilda reiðufé. Við berum ekki ábyrgð á gjafabréfum sem týnast.
Persónuvernd
Við förum með persónuupplýsingar af trúnaði og í samræmi við lög. Nánar í persónuverndarstefnu.
Ófyrirséð atvik
Fjarðabásar bera ekki ábyrgð á töfum eða tjóni sem stafa af atvikum sem eru utan okkar valds, t.d. náttúruhamförum, veðri, verkföllum eða truflunum hjá flutningsaðilum.
Ágreiningur og lög
- Ef upp kemur ágreiningur reynum við alltaf fyrst að leysa hann með þér í sameiningu.
- Ef það tekst ekki getur þú leitað til kærunefndar vöru- og þjónustukaupa.
- Um skilmálana gilda íslensk lög. Mál sem kunna að rísa vegna þeirra skulu rekin fyrir Héraðsdómi Austurlands.
Breytingar
Við getum breytt þessum skilmálum. Um hverja pöntun gilda þeir skilmálar sem voru í gildi þegar pöntunin var gerð.
Síðast uppfært: október 2026