Legal notice

Þessir skilmálar gilda um öll kaup í netverslun Fjarðabása á fjardabasar.is. Með því að ganga frá pöntun samþykkir þú skilmálana. Um kaupin gilda einnig lög um neytendakaup nr. 48/2003 og lög um neytendasamninga nr. 16/2016.

Seljandi

Fjarðabásar
Kennitala: 210483-5009
Molinn, Hafnargötu 2, 730 Reyðarfirði
Netfang: fjardabasar@gmail.com
Sími: 780-7700

Vörurnar

  • Fjarðabásar er hringrásarverslun. Flestar vörur eru notaðar og seldar í umboðssölu fyrir einstaklinga sem leigja bás hjá okkur. Fjarðabásar sjá um söluna, greiðsluna og afhendinguna.
  • Við leggjum okkur fram um að lýsa hverri vöru rétt og sýna hana vel á myndum. Litir geta þó virst aðeins öðruvísi eftir skjám. Eðlileg notkunarmerki sem koma fram í lýsingu eða á myndum teljast ekki galli.
  • Flestar vörur eru aðeins til í einu eintaki og eru einnig til sölu í versluninni okkar. Ef vara reynist seld eftir að þú pantar hana látum við þig vita strax og endurgreiðum hana að fullu.

Verð

  • Öll verð eru í íslenskum krónum og eru endanleg verð vörunnar. Sendingarkostnaður bætist við og kemur fram áður en greitt er.
  • Við áskiljum okkur rétt til að hætta við pöntun ef verð er rangt vegna augljósrar villu. Ef það gerist látum við þig vita og endurgreiðum að fullu.
  • Afsláttur á vörum kemur fram á vörusíðu og dregst sjálfkrafa frá í körfu.

Pöntun og greiðsla

  • Kaupsamningur kemst á þegar greiðsla hefur verið staðfest og þú hefur fengið staðfestingu á pöntun í tölvupósti.
  • Greitt er með þeim greiðsluleiðum sem í boði eru í greiðsluferlinu. Greiðslur fara í gegnum örugga greiðslumiðlun og við sjáum aldrei kortaupplýsingar.

Afhending

  • Pantanir eru sendar með Póstinum. Sendingarkostnaður og afhendingarmöguleikar koma fram í greiðsluferlinu.
  • Frí sending er á pöntunum yfir 9.000 kr.
  • Við reynum að senda pantanir af stað eins fljótt og hægt er, yfirleitt innan 1–3 virkra daga. Afhendingartími Póstsins bætist þar við.
  • Þegar verslunin er lokuð, t.d. í vetrar- eða sumarfríi, getur sendingartími lengst. Lokanir eru auglýstar hér á síðunni með fyrirvara og pantanir sem berast á meðan eru sendar af stað um leið og við opnum aftur.
  • Ábyrgð á vörunni flyst til kaupanda þegar hún hefur verið afhent.
  • Nánar í sendingarstefnu.

Skilaréttur

  • Þú hefur 14 daga frá móttöku til að hætta við kaup í netversluninni.
  • Kaupandi greiðir sendingarkostnað við að skila vöru.
  • Ekki er hægt að skila vörum sem keyptar eru í versluninni sjálfri.
  • Allar upplýsingar um skil og endurgreiðslur eru í skila- og endurgreiðslustefnu.

Gallar

Ef vara er gölluð eða ekki í samræmi við lýsingu skaltu hafa samband við okkur sem fyrst. Þú átt rétt á að kvarta yfir göllum samkvæmt lögum um neytendakaup.

Gjafabréf

  • Gjafabréf gilda í 1 ár frá kaupdegi. Gildistíminn kemur einnig fram á gjafabréfinu sjálfu.
  • Gjafabréf gilda eingöngu hjá Fjarðabásum, bæði í netversluninni á fjardabasar.is og í verslun Fjarðabása í Molanum, líka á vörur á afslætti. Þau gilda ekki í öðrum verslunum í Molanum.
  • Ef aðeins hluti gjafabréfs er notaður haldast eftirstöðvarnar inni á því út gildistímann.
  • Ekki er hægt að skipta gjafabréfum í peninga.
  • Gjafabréf jafngilda reiðufé. Við berum ekki ábyrgð á gjafabréfum sem týnast.

Persónuvernd

Við förum með persónuupplýsingar af trúnaði og í samræmi við lög. Nánar í persónuverndarstefnu.

Ófyrirséð atvik

Fjarðabásar bera ekki ábyrgð á töfum eða tjóni sem stafa af atvikum sem eru utan okkar valds, t.d. náttúruhamförum, veðri, verkföllum eða truflunum hjá flutningsaðilum.

Ágreiningur og lög

  • Ef upp kemur ágreiningur reynum við alltaf fyrst að leysa hann með þér í sameiningu.
  • Ef það tekst ekki getur þú leitað til kærunefndar vöru- og þjónustukaupa.
  • Um skilmálana gilda íslensk lög. Mál sem kunna að rísa vegna þeirra skulu rekin fyrir Héraðsdómi Austurlands.

Breytingar

Við getum breytt þessum skilmálum. Um hverja pöntun gilda þeir skilmálar sem voru í gildi þegar pöntunin var gerð.

Síðast uppfært: október 2026