Collection: Seiðalagður

Hér erum við með gullfalleg eyrnabönd sem Guðný prjónar úr ull af eigin kindum. Hún elur kindurnar, rýir þær, spinnur band úr ullinni, handlitar það sjálf og prjónar svo úr því. Er eitthvað meira beint frá býli?

Hún er einnig með instagram undir nafninu Seiðalagður þar sem hægt er að fræðast meira um ferlið.

Böndin eru flísfóðruð fyrir þau sem þola ekki ullina.